Karfan þín

Framleiðsla og gæðastaðlar hjá Kenzen

Kenzen vinnur eingöngu með saumastofum og verksmiðjum sem uppfylla stranga gæðastaðla. Framleiðsluaðilar okkar hafa hlotið alþjóðlega viðurkenndar vottanir sem staðfesta öryggi, gæði og ábyrga framleiðsluhætti.

Teymi Kenzen hefur heimsótt verksmiðjurnar og fylgst með framleiðsluferlinu frá A til Ö til að tryggja að öll framleiðsla standist þær kröfur sem við gerum um gæði, öryggi og fagmennsku.

Hér að neðan eru dæmi um nokkrar af helstu vottununum og hvað þær fela í sér:


OEKO-TEX® Standard 100

Vottun sem staðfestir að textílefni hafi verið prófuð með tilliti til skaðlegra efna og séu örugg í snertingu við húð. Þetta er einn þekktasti og virtasti öryggisstaðall heims fyrir textílvörur.


GRS – Global Recycled Standard

Staðfestir notkun á endurunnum efnum og tryggir rekjanleika í gegnum alla framleiðslukeðjuna. Vottunin felur einnig í sér kröfur um umhverfisábyrgð, félagslega ábyrgð og takmarkanir á notkun skaðlegra efna.


REACH (Chemical Regulation of the European Union)

Tryggir að efni sem notuð eru í framleiðslunni uppfylli strangar kröfur Evrópusambandsins um efnaöryggi, heilsuvernd og umhverfisvernd. Reglugerðin gildir fyrir allar vörur sem seldar eru innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).


AZO-Free Dyes

Staðfestir að textílefni innihaldi ekki bönnuð AZO-litarefni sem geta brotnað niður í skaðleg arómatísk amín. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir fatnað sem er í beinni snertingu við húð.