Algengar spurningar
Svör við spurningum um pantanir, sendingar, skil og allt sem tengist KENZEN.
Fleiri flokkar
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Pantanir & greiðslur
Breytingar á pöntun
Get ég hætt við pöntunina mína?
Já, ef þú lætur okkur vita áður en pöntunin er afgreidd. Sendu póst á kenzen@kenzen.is með pöntunarnúmerinu og við endurgreiðum hana að fullu. Pantanir sem berast fyrir kl. 10 á virkum dögum eru afgreiddar samdægurs, svo því fyrr því betra.
Ef pöntunin er farin af stað getur þú skilað henni innan 14 daga eða skipt innan 30 daga þegar hún berst.
Get ég breytt pöntuninni eftir að ég panta?
Viltu breyta stærð, lit eða vöru? Sendu okkur póst sem fyrst og við breytum pöntuninni ef hún hefur ekki verið afgreidd. Ef hún er farin af stað getur þú skipt vörunni þegar hún berst, sjá Skil & skipti.
Get ég breytt afhendingarstað eða heimilisfangi?
Áður en pöntunin er afgreidd: sendu okkur póst og við lögum það. Eftir að hún er komin til Dropp getur þú beðið Dropp um að breyta afhendingarmáta á dropp@dropp.is.
Að panta
Þarf ég aðgang til að panta?
Nei, þú getur gengið frá pöntun sem gestur. Með aðgangi sérðu fyrri pantanir og ert fljótari í gegnum greiðsluferlið næst.
Hvernig veit ég að pöntunin fór í gegn?
Þú færð staðfestingu í tölvupósti um leið og greiðslan hefur gengið í gegn. Þegar sendingin er komin til Dropp færðu skilaboð frá þeim um hvenær og hvar þú getur sótt hana.
Hvar finn ég pöntunarnúmerið?
Efst í staðfestingarpóstinum, það byrjar á #. Finnurðu ekki póstinn? Kíktu í ruslpóstinn eða hafðu samband með netfanginu sem þú notaðir við pöntunina.
Varan sem ég vil er uppseld. Hvað get ég gert?
Skráðu þig á biðlistann á vörusíðunni og þú færð tilkynningu um leið og varan kemur aftur á lager. Þeir sem eru á biðlistanum heyra fyrstir af því.
Greiðslur
Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?
Þú getur greitt með greiðslukorti í gegnum Teya, eða með Netgíró og Pei sem bjóða upp á greiðsludreifingu. Gjafabréf og afsláttarkóða slærðu inn í greiðsluferlinu.
Er öruggt að greiða hjá ykkur?
Já. Öll viðskipti fara í gegnum örugga og dulkóðaða greiðslugátt og við sjáum aldrei fullar kortaupplýsingar þínar.
Greiðslan fór ekki í gegn. Af hverju?
Algengustu ástæðurnar eru rangar kortaupplýsingar, útrunnið kort eða að bankinn hafi stöðvað greiðsluna. Athugaðu upplýsingarnar, prófaðu aðra greiðsluleið eða hafðu samband við bankann þinn.
Eru verðin með VSK?
Já, öll verð eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður bætist við í greiðsluferlinu nema pöntunin sé 16.000 kr. eða meira, þá er sendingin frí.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Sendingar & afhending
Sendingarkostnaður og afhendingarmátar
Hvað kostar sendingin?
Sendingin er frí ef pöntunin er 16.000 kr. eða meira. Annars greiðir þú sendingargjald Dropp, sem þú sérð í greiðsluferlinu áður en þú borgar.
Hvaða afhendingarmátar eru í boði?
Við sendum allar pantanir með Dropp. Þú velur þann afhendingarstað Dropp sem hentar þér, eða heimsendingu þar sem hún er í boði. Ekki er hægt að sækja netpantanir í verslunina okkar í Tónahvarfi.
Sendið þið til útlanda?
Nei, kenzen.is sendir eingöngu innanlands.
Afhendingartími
Hvenær fæ ég pöntunina?
Pantanir sem berast fyrir kl. 10 á virkum dögum eru sendar af stað samdægurs:
- Höfuðborgarsvæðið: tilbúin á afhendingarstað Dropp frá kl. 17 sama dag, eða keyrð heim milli kl. 18 og 22.
- Utan höfuðborgarsvæðisins: komin á afhendingarstað Dropp næsta virka dag.
Pantanir sem berast eftir kl. 10 eða um helgi fara af stað næsta virka dag.
Hvert keyrir Dropp heim?
Dropp keyrir heim á höfuðborgarsvæðinu og á Suðvesturhorninu: Reykjanesbæ, Sandgerði, Hveragerði, Selfossi, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka og Akranesi. Annars staðar sækir þú pöntunina á næsta afhendingarstað Dropp.
Rakning og afhending
Hvernig fylgist ég með sendingunni?
Dropp sendir þér skilaboð þegar sendingin er komin og hvenær þú getur sótt hana. Þú getur líka flett henni upp með sendingarnúmerinu á dropp.is. Í heimsendingu getur þú fylgst með bílnum í rauntíma.
Hvað er pakkinn geymdur lengi?
Í 7 daga á afhendingarstaðnum. Ef þú kemst ekki fyrr getur þú beðið Dropp um lengri frest á dropp@dropp.is.
Getur einhver annar sótt pakkann fyrir mig?
Já. Áframsendu QR-kóðann úr tölvupóstinum frá Dropp, eða sendu skjáskot af kóðanum úr SMS-inu. Sá sem sækir sýnir kóðann á afhendingarstaðnum.
Hvað gerist ef ég sæki ekki pakkann?
Sending sem er ekki sótt innan 7 daga kemur aftur til okkar. Hafðu samband og við sendum hana aftur gegn nýju sendingargjaldi.
Hvað geri ég ef pakkinn kom skemmdur eða það vantar í hann?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is innan 7 daga frá afhendingu, með pöntunarnúmeri og myndum af vörunni og umbúðunum. Sjá Skil & skipti um hvernig við leysum málið.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Skil & skipti
Frestir
Hvað hef ég langan tíma til að skila eða skipta?
Þú hefur 14 daga til að skila vöru gegn endurgreiðslu og 30 daga til að skipta henni í aðra stærð, aðra vöru eða inneign. Frestirnir byrja daginn eftir að þú tekur við vörunni.
Get ég skilað eða skipt eftir að fresturinn rennur út?
Því miður ekki. Ef eitthvað óvenjulegt kom upp á, sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is áður en þú sendir vöruna.
Svona skilar þú eða skiptir
Hvernig fer ég að því að skila eða skipta?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is með pöntunarnúmerinu og segðu hvort þú viljir skila eða skipta. Þú getur líka komið með vöruna í verslunina okkar í Tónahvarfi 5 á opnunartíma.
Ekki senda vöru til okkar án þess að hafa samband fyrst.
Hvernig virka skipti?
Við sendum þér endursendingarmiða frá Dropp í tölvupósti, þér að kostnaðarlausu. Þú skilar sendingunni á næsta afhendingarstað Dropp. Þegar hún hefur borist vöruhúsinu okkar og við höfum farið yfir vöruna sendum við þér nýju vöruna.
Hvernig skila ég vöru gegn endurgreiðslu?
Láttu okkur fyrst vita í tölvupósti. Þú bókar svo endursendinguna á dropp.is/voruskil undir „Skila vöru frá annarri verslun“ og greiðir sendingargjaldið þar. Sendinguna á að stíla á KENZEN, Tónahvarfi 5, 203 Kópavogi.
Hver greiðir sendinguna til baka?
Við greiðum endursendinguna þegar þú skiptir, eða ef varan er gölluð eða röng. Ef þú skilar vöru gegn endurgreiðslu greiðir þú sendinguna til baka. Skil og skipti í verslun kosta ekkert.
Ástand og undantekningar
Í hvaða ástandi þarf varan að vera?
Ónotuð, óþvegin og óskemmd, með öllum merkimiðum á og í upprunalega plastpokanum.
Er eitthvað sem ekki er hægt að skila?
Nærbuxum og sokkum er ekki hægt að skila af hreinlætisástæðum, nema varan sé gölluð. Útsöluvörur fást ekki endurgreiddar, en það má skipta þeim (sjá næstu spurningu).
Get ég skilað eða skipt útsöluvöru?
Útsöluvörur fást ekki endurgreiddar. Þú getur skipt í aðra stærð af sömu vöru, eða í aðra vöru að sama verðmæti og þú greiddir. Ef nýja varan er dýrari greiðir þú mismuninn.
Hvað ef stærðin sem ég vil er uppseld?
Þá getur þú valið aðra vöru eða fengið inneign. Ef þú ert innan 14 daga skilafrestsins getur þú líka fengið endurgreitt.
Gallaðar eða rangar vörur
Varan er gölluð. Hvað geri ég?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is um leið og þú tekur eftir gallanum, með pöntunarnúmeri og skýrum myndum. Við bjóðum viðgerð, nýja vöru eða endurgreiðslu í samræmi við lög um neytendakaup og greiðum endursendinguna.
Eðlilegt slit, röng meðhöndlun eða rangur þvottur telst ekki galli.
Hvað geri ég ef ég fékk ranga vöru eða það vantar í pöntunina?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is innan 7 daga frá afhendingu, með pöntunarnúmeri og mynd af því sem kom. Við sendum þér réttu vöruna þér að kostnaðarlausu.
Endurgreiðslur
Hvenær fæ ég endurgreitt?
Þegar endursendingin berst vöruhúsinu okkar förum við yfir vöruna og endurgreiðum innan 1–2 virkra daga. Kortafyrirtækið þarf svo 1–3 virka daga til viðbótar.
Athugaðu: endurgreiðslan birtist á kortayfirlitinu undir sömu dagsetningu og upphaflega greiðslan, ekki dagsetningu endurgreiðslunnar.
Í verslun endurgreiðum við strax, en kortafærslan tekur samt 1–3 virka daga.
Hvernig er endurgreitt?
Á sama greiðslumáta og þú notaðir: greiðslukort, Netgíró eða Pei. Þú getur líka valið að fá inneign í staðinn.
Hversu mikið fæ ég endurgreitt?
Verðið sem þú greiddir fyrir vöruna. Ef þú skilar allri pöntuninni innan 14 daga endurgreiðum við líka upphaflega sendingargjaldið (ódýrasta staðlaða sending). Sendingin til baka er ekki endurgreidd.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Aðgangur & samskipti
Aðgangurinn þinn
Þarf ég aðgang til að versla?
Nei. Þú getur verslað sem gestur og færð samt alla pósta um pöntunina og sendinguna.
Af hverju að stofna aðgang?
Þá sérðu allar pantanir og stöðu þeirra á einum stað og ert fljótari í gegnum greiðsluferlið næst.
Póstlistinn
Hvernig skrái ég mig á póstlistann?
Skráðu netfangið þitt í Email hópinn neðst á síðunni, eða hakaðu í reitinn í greiðsluferlinu. Þá heyrir þú fyrst af nýjum vörum og tilboðum.
Hvernig afskrái ég mig?
Smelltu á afskráningarhlekkinn neðst í hvaða pósti frá okkur sem er. Þú færð áfram pósta sem tengjast pöntunum þínum.
Hafa samband
Hvernig næ ég í ykkur?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is, notaðu hafðu samband formið eða sendu okkur skilaboð á Instagram @kenzensport. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Stærðir & umhirða
Rétta stærðin
Hvernig finn ég rétta stærð?
Á vörusíðunni sérðu hversu há fyrirsætan er og í hvaða stærð hún er. Þar finnur þú líka stærðartöflu ef hún er í boði fyrir vöruna.
Ertu enn óviss? Sendu okkur hæðina þína og stærðina sem þú notar venjulega á kenzen@kenzen.is og við hjálpum þér að velja.
Eru buxurnar til í mismunandi síddum?
Sumar þeirra:
- SoftForm Straightleg: Regular, Tall og Extra Tall, með 7 cm á milli sídda.
- SoftForm og SoftSculpt Foldover Straightleg: Regular og Tall, sumir litir líka í Extra Tall.
- ActiveSculpt Leggings og Flared Pants: Regular og Tall, Tall er 10 cm lengri.
- Kenzen Everyday Pants: Regular og Tall, með 7 cm á milli.
Þú velur síddina á vörusíðunni þegar hún er í boði.
Efnin
Úr hverju eru flíkurnar?
Við vinnum með sjö efni: þrjú æfingaefni (SoftForm, ActiveSculpt og SoftSculpt) og fjögur lifestyle-efni (Cotton Fleece, French Terry, Motion og Ribbed). Sjáðu samsetningu og eiginleika hvers efnis á Efnin okkar.
Eru efnin vottuð?
Já, öll efnin okkar eru OEKO-TEX® Standard 100 vottuð, sem þýðir að þau hafa verið prófuð fyrir skaðlegum efnum. Lestu meira um staðlana okkar.
Umhirða
Hvernig þvæ ég æfingafötin?
Þvoðu á köldu prógrammi eða við 30 °C með svipuðum litum og án mýkingarefnis. Hengdu upp til þerris.
Hvernig þvæ ég lifestyle-vörurnar?
Eins og æfingafötin: kalt eða 30 °C, svipaðir litir og ekkert mýkingarefni. Snúðu flíkinni við ef hún er með upphleyptri merkingu. Bómull getur hlaupið í hita, svo hengdu hana upp til þerris.
Hvernig þvæ ég gallabuxurnar?
Mildur þvottur við 30 °C, á röngunni og aðskilið frá öðrum flíkum. Straujaðu á lágum hita á röngunni.
Má setja flíkurnar í þurrkara?
Við mælum ekki með því. Hitinn fer illa með teygjuna í æfingafötunum og bómull getur hlaupið.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Verslunin & gjafabréf
Verslunin
Hvar er verslunin og hvenær er opið?
Verslunin okkar er í Tónahvarfi 5, 203 Kópavogi.
- Mánudaga–föstudaga: 13–17
- Laugardaga: 11–15
- Sunnudaga: lokað
Fylgstu með @kenzensport fyrir breyttan opnunartíma um hátíðir.
Get ég sótt netpöntun í verslunina?
Nei, allar netpantanir eru sendar með Dropp. Þú getur samt alltaf kíkt við í verslunina, mátað og verslað á staðnum.
Get ég skilað eða skipt í verslun?
Já, innan sömu fresta: 14 daga skil og 30 daga skipti. Taktu vöruna með í upprunalega pokanum með merkimiðunum á. Í verslun endurgreiðum við strax.
Gjafabréf
Hvernig virka gjafabréfin?
Gjafabréfin eru til sem rafrænt gjafabréf og sem gjafaaskja. Þau gilda bæði í netversluninni og í versluninni okkar í Tónahvarfi.
Hvað gildir gjafabréf lengi?
Í 4 ár frá útgáfudegi.
Hvernig nota ég gjafabréf á netinu?
Sláðu kóðann inn í reitinn „Gjafakort eða afsláttarkóði“ í greiðsluferlinu.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.
Skilmálar
Skilmálar og stefnur
Hvar finn ég almenna skilmála?
Almennu skilmálarnir eru á síðunni Skilmálar. Þar finnur þú meðal annars upplýsingar um verð og greiðslur, afhendingu, 14 daga skilarétt, 30 daga skiptirétt og gallaðar vörur.
Hvar finn ég skilastefnuna?
Skilastefnan okkar er á sérstakri síðu: Skilastefna. Í stuttu máli: 14 daga skilaréttur gegn endurgreiðslu og 30 daga skiptiréttur. Öll smáatriði eru undir Skil & skipti.
Hvar finn ég sendingarstefnuna?
Sendingarskilmálarnir eru hluti af almennu skilmálunum okkar. Helstu atriðin, eins og sendingarkostnað og afhendingartíma, finnur þú undir Sendingar & afhending.
Hvernig farið þið með persónuupplýsingar?
Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnuna okkar, sem útskýrir hvaða gögn við vinnum, í hvaða tilgangi og hver réttindi þín eru.
Hvert leita ég ef við náum ekki saman?
Ef við leysum ekki málið saman getur þú vísað því til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur póst á kenzen@kenzen.is eða notaðu hafðu samband formið. Við svörum innan 1–2 virkra daga. Settu pöntunarnúmerið með ef spurningin snýst um pöntun.