Karfan þín

KENZEN

Efnin okkar

Við veljum efni af kostgæfni með áherslu á þægindi, endingu og góða eiginleika – og vinnum stöðugt að því að þróa vörurnar okkar enn frekar. Hér finnur þú allt um efnin okkar svo þú vitir nákvæmlega hvað þú ert að fá áður en þú pantar.

07
Efni
02
Æfingar & hversdagur
100%
OEKO-TEX® vottað
01

SoftForm

Æfingaefni
Nærmynd af KENZEN SoftForm efni, 81% nylon og 19% Lycra®
Mýksta æfingaefnið okkar

Einstaklega mjúkt og teygjanlegt æfingaefni úr nylon- og Lycra® blöndu. Þetta er mýksta æfingaefnið okkar og í uppáhaldi hjá mörgum. Efnið hreyfist með líkamanum, teygist í allar áttir og veitir fullkomið jafnvægi milli þæginda og stuðnings. Hentar einstaklega vel fyrir yoga, léttari æfingar, teygjur, hlaup og daglegt líf.

Hentar fyrirYoga, léttari æfingar, teygjur, hlaup og daglegt líf.

Skoða SoftForm
Samsetning
81% Nylon / 19% Lycra®
Stuðningur
3/5
Mýkt
5/5
Teygjanleiki
5/5
Umhirða
Best er að þvo flíkurnar á köldu prógrammi eða við 30°C og forðast að setja þær í þurrkara.
Vottun
OEKO-TEX®
02

ActiveSculpt

Æfingaefni
Nærmynd af KENZEN ActiveSculpt efni, 80% polyester og 20% spandex
Fyrir krefjandi æfingar

Hágæða æfingaefni úr polyester- og spandex blöndu sem sameinar góðan stuðning, teygjanleika og þægindi. Efnið teygist í allar áttir, heldur vel að líkamanum og hentar einstaklega vel fyrir krefjandi æfingar, hlaup, lyftingar og annan virkan lífsstíl.

Hentar fyrirKrefjandi æfingar, hlaup, lyftingar og virkan lífsstíl.

Skoða ActiveSculpt
Samsetning
80% Polyester / 20% Spandex
Stuðningur
4/5
Mýkt
4/5
Teygjanleiki
4/5
Umhirða
Best er að þvo flíkurnar á köldu prógrammi eða við 30°C og forðast að setja þær í þurrkara.
Vottun
OEKO-TEX®
03

SoftSculpt

Æfingaefni
Nærmynd af KENZEN SoftSculpt efni, 75% nylon og 25% spandex
Mött áferð, mikið aðhald

Mjúkt og matt æfingaefni sem veitir extra mikinn stuðning og aðhald. Efnið heldur vel að líkamanum og mótar hann fallega. Mjúk, mött áferð gerir efnið einstaklega fallegt og þægilegt. Hentar vel fyrir hlaup, lyftingar & bæði krefjandi og léttari æfingar.

Hentar fyrirHlaup, lyftingar og bæði krefjandi og léttari æfingar.

Ábending um stærðVegna mikils aðhalds mælum við með að velja stærri stærðina ef þú ert á milli stærða.
Skoða SoftSculpt
Samsetning
75% Nylon / 25% Spandex
Stuðningur
5/5
Mýkt
4/5
Teygjanleiki
3/5
Umhirða
Best er að þvo flíkurnar á köldu prógrammi eða við 30°C og forðast að setja þær í þurrkara.
Vottun
OEKO-TEX®
04

Cotton Fleece

Lifestyle
Nærmynd af KENZEN Cotton Fleece efni, 100% bómull með flísáferð að innan
Mjúk flísáferð að innan

Mjúkt, hlýtt og endingargott efni úr 100% bómull. Efnið er með mjúkri flísáferð að innan sem gerir flíkurnar extra hlýjar og notalegar. Efnið er þykkt og hentar því einstaklega vel yfir kaldari mánuðina, hvort sem er yfir æfingafötin eða sem þægilegur hversdagsfatnaður.

Hentar fyrirKaldari mánuðir, yfir æfingafötin eða hversdagsfatnaður.

Skoða Cotton Fleece
Samsetning
100% Bómull
Þyngd
3/5
Mýkt
5/5
Teygjanleiki
3/5
Umhirða
Best er að þvo flíkurnar á köldu prógrammi eða við 30°C og forðast að setja þær í þurrkara. Þegar um upphleyptar merkingar er að ræða er gott að verja þær með því að þvo flíkina á röngunni.
Vottun
OEKO-TEX®
05

French Terry

Lifestyle
Nærmynd af KENZEN French Terry efni, 100% bómull
Þétt efni sem fellur fallega

Hágæða og endingargott efni úr 100% bómull með klassískri French Terry áferð. Efnið er þétt og frekar þungt í sér sem gefur flíkunum fallega áferð og eru margir sem kjósa french terry áferðina yfir flís. Fullkomið fyrir hversdagsleikann, ferðalög eða yfir æfingafatnaðinn.

Hentar fyrirHversdagsleikinn, ferðalög eða yfir æfingafatnaðinn.

Skoða French Terry
Samsetning
100% Bómull
Þyngd
5/5
Mýkt
3/5
Teygjanleiki
2/5
Umhirða
Best er að þvo flíkurnar á köldu prógrammi eða við 30°C og forðast að setja þær í þurrkara. Þegar um upphleyptar merkingar er að ræða er gott að verja þær með því að þvo flíkina á röngunni.
Vottun
OEKO-TEX®
06

Motion

Lifestyle
Nærmynd af KENZEN Motion efni, 53% bómull, 42% elastane og 5% spandex
Létt og andar vel

Létt, mjúkt og þægilegt efni úr bómullarblöndu sem fellur einstaklega fallega að líkamanum. Efnið andar vel, hreyfist með líkamanum og er fullkomið fyrir daglegt líf. Við mælum sérstaklega með Motion flíkunum fyrir ferðalög, hversdagsleikann eða yfir æfingafatnaðinn.

Hentar fyrirDaglegt líf, ferðalög eða yfir æfingafatnaðinn.

Skoða Motion
Samsetning
53% Cotton / 42% Elastane / 5% Spandex
Þyngd
2/5
Mýkt
4/5
Teygjanleiki
3/5
Umhirða
Best er að þvo flíkurnar á köldu prógrammi eða við 30°C og forðast að setja þær í þurrkara. Þegar um upphleyptar merkingar er að ræða er gott að verja þær með því að þvo flíkina á röngunni.
Vottun
OEKO-TEX®
07

Ribbed

Lifestyle
Nærmynd af KENZEN Ribbed efni, 91% Lyocell og 9% spandex
Fínleg ribbed áferð

Einstaklega mjúkt og teygjanlegt efni úr Lyocell- og spandexblöndu. Ribbed áferðin gefur efninu fallegt yfirbragð á meðan mikil mýkt og teygjanleiki gera það einstaklega þægilegt. Efnið fellur fallega að líkamanum, fylgir hreyfingum hans og mótar hann á fallegan og náttúrulegan hátt.

Hentar fyrirDaglegt líf og hversdagsleikinn.

Skoða Ribbed
Samsetning
91% Lyocell / 9% Spandex
Þyngd
3/5
Mýkt
5/5
Teygjanleiki
5/5
Umhirða
Best er að þvo flíkurnar á köldu prógrammi eða við 30°C og forðast að setja þær í þurrkara. Þegar um upphleyptar merkingar er að ræða er gott að verja þær með því að þvo flíkina á röngunni.
Vottun
OEKO-TEX®

Finndu rétta efnið

Í hvað ætlar þú að nota flíkina?

Veldu notkun og við sýnum þér efnin sem henta best. Allar einkunnir, samsetning og umhirða eru hlið við hlið hér fyrir neðan.

SoftForm01 · Æfingaefni ActiveSculpt02 · Æfingaefni SoftSculpt03 · Æfingaefni Cotton Fleece04 · Lifestyle French Terry05 · Lifestyle Motion06 · Lifestyle Ribbed07 · Lifestyle
Samsetning 81% Nylon
19% Lycra®
80% Polyester
20% Spandex
75% Nylon
25% Spandex
100% Bómull 100% Bómull 53% Cotton
42% Elastane
5% Spandex
91% Lyocell
9% Spandex
Stuðningur 3/5 4/5 5/5 — — — —
Þyngd — — — 3/5 5/5 2/5 3/5
Mýkt 5/5 4/5 4/5 5/5 3/5 4/5 5/5
Teygjanleiki 5/5 4/5 3/5 3/5 2/5 3/5 5/5
Hentar fyrir Yoga, léttari æfingar, teygjur, hlaup og daglegt líf Krefjandi æfingar, hlaup, lyftingar og virkan lífsstíl Hlaup, lyftingar og bæði krefjandi og léttari æfingar Kaldari mánuðir, yfir æfingafötin eða hversdagsfatnaður Hversdagsleikinn, ferðalög eða yfir æfingafatnaðinn Daglegt líf, ferðalög eða yfir æfingafatnaðinn Daglegt líf og hversdagsleikinn
Umhirða Kaldur þvottur eða 30°C, ekki í þurrkara Kaldur þvottur eða 30°C, ekki í þurrkara Kaldur þvottur eða 30°C, ekki í þurrkara Kaldur þvottur eða 30°C, ekki í þurrkara. Þvoið á röngunni ef flíkin er með upphleyptum merkingum Kaldur þvottur eða 30°C, ekki í þurrkara. Þvoið á röngunni ef flíkin er með upphleyptum merkingum Kaldur þvottur eða 30°C, ekki í þurrkara. Þvoið á röngunni ef flíkin er með upphleyptum merkingum Kaldur þvottur eða 30°C, ekki í þurrkara. Þvoið á röngunni ef flíkin er með upphleyptum merkingum

Öll sjö efnin eru OEKO-TEX® vottuð. Í síma: strjúktu til hliðar til að sjá öll efnin →

Um okkur

Hannað fyrir daglegt líf, hreyfingu og allt þar á milli.

KENZEN er íslenskt lífstílsmerki þar sem gæði, þægindi og stílhrein hönnun fara saman. Við hönnum flíkur fyrir fjölbreyttan og virkan lífsstíl – hvort sem það er fyrir daglegt líf, líkamsrækt, yoga, ferðalög eða rólegri daga.

Við leggjum mikla áherslu á gæði, snið og efnisval í öllu sem við gerum. Fyrir okkur skiptir máli að flíkurnar séu ekki aðeins fallegar heldur einnig þægilegar, endingargóðar og hannaðar til þess að fylgja þér í gegnum daginn. Við viljum alltaf fá endurgjöf frá viðskiptavinum okkar og erum opin fyrir því að laga og breyta ef þörf er á.

Persónuleg og góð þjónusta er jafnframt stór hluti af KENZEN. Við viljum að upplifunin sé góð frá upphafi til enda, hvort sem þú heimsækir okkur í verslunina okkar í Tónahvarfi 5 eða verslar hjá okkur í netversluninni.

Skoða allar vörur